Jæja þá er búið að mála, reyndar lauk því á fimmtudaginn
í síðustu viku og þvílíkur og annar eins munur á einu húsnæði
VÁ

Þessu hefði ég bara ekki trúað að
málningin ein og sér gæti gert svona mikið, en þetta er líka alveg
fantagóður málari sem ég fékk

Ég ákvað að hafa allt hvítt
en það hef ég ekki haft í mörg ár. Þetta er hreint bara gaman

Svo er ég byrjuð að leggja parketið, fékk reyndar
hjálp frá Leif ( lesið Læf )

svefnherbergið er búið og næst ætla
ég að ráðast á stofuna.
Svo er ég byrjuð að flytja mig smátt og smátt
uppeftir eða þ.e.a.s. dótið mitt en eins og ég segi þá er þetta
bara smátt og smátt en sem komið er. Ég flyt ekki endanlega fyrr en
gólfin eru tilbúin.
Hér er búið að vera BRJÁLAÐ rok og GEÐVEIK
rigning. Það fór allt á flot í nokkrum bæjum hérna í Danmörku og
þeir voru flestir á Jótlandi að ég held ég fari rétt með og fór
Vejle verst út úr því. Það var svo mikill vatnselgur þar að götur
voru eins og risastór straumvötn og húsin í bænum eins og eyjar og
sker. Lögreglan kom meira að segja með tilkynningar í útvarpið að
þeir sem ættu ekki brýnt erindi í bæjinn ættu ekki að koma þangað.
Einngi vað að loka hluta af Motorvejen ( hraðbrautin ) vegna
þess að það safnaðist svo mikið vant.
Ég fór til vinnu klukkan 7 í morgun og leiðin sem
ég er vön að keyra var ófær. Ég fer undir litla brú en undir henni
var búinn að myndast svo mikill og stór pollur að það hefði flætt
yfir vélina hjá mér, sem keyri um á Bens Sprinter sem er nú ekki
alveg með lægstu bílum. Það er þó verið að spá kólnandi svo ég fer
vonandi að sjá snjó hérna úti en hans er ég farin að sakna
talsvert, og þá sérstaklega þegar ég sé fréttir af því að allt er á
kafi á Íslandi.
Svo fékk ég nú heldur betur glaðning
þegar ég kom heim úr vinnunni, Nína vinkona ( konan hans Leifs )
benti mér á að fara yfir í hús og tékka hvort ekki væri nú allt í
lagi með allt, kíkja á niðurföll og fleira í þeim dúr út af allri
rigningunni. Svo er ég lika búin að koma fyrir lugtum, með kertum
í, á útidyratröppurnar svo það veitti ekki af því að kanna hvort
þær væru nú enn á sínum stað. Og viti menn
Þar fyrir innan dyrnar hjá mér voru spánnýjar
rimla- og rúllugardýnur fyrir alla herbergis- og eldhúsgluggana
mína . . . . . . . . . .. . innflutningsgjöf frá
Nínu
ég varð svo snortin að ég felldi bara tár
þetta var sko fallega gert af henni þessari elsku . . .
. alveg ótrúlega góð kona
Takk fyrir mig Nína mín
:*
Jæja nú held ég að ég sé búin að koma öllu
frá mér sem ég hef að segja í bili, þangað til næst
Bless bless Þóra Björk 